| Um Króksþrif ehf |
|
Króksþrif er hreingerningarfyrirtæki sem var stofnað í Janúar 2010 á Sauðárkróki. Starfsfólk Króksþrifa er tilbúið til að takast á við krefjandi störf í breytilegu umhverfi. Allir starfsmenn fyrirtækisins þurfa að hafa skilað inn hreinu sakavottorði auk þess sem þeir eru bundnir þagnareið á starfsstöðum þess. Króksþrif leggur mjög mikla áherslu á persónuleg og traust samskipti milli viðskiptavina sinna, opin og heiðarleg, sem og við aðra. Króksþrif er vel tækjum búið í öll störf sem flokkast undir hreingerningar og hefur yfir nýjustu tækni og öflugum efnum að ráða þegar kemur að t.d lyktareyðingu, djúphreinsun á fúgum, flísum, áklæðum, panel, hellum, steingólfum, dúkum & parketslípun svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið leggur mikið upp úr vistvænum hreingerningum og því er gaman að segja frá því að Króksþrif er frumkvöðull á Íslandi umhverfisvænni bónleysingu. Bónleysingin felst í því að nota engan vökva eða í sumum tilfellum aðeins vatn. Þessi tækni er bylting frá því sem áður var þar sem engin eiturefni eru notuð. |






Inflúensufaraldur herjar nú á landsmenn. Um er að...